Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

Mál nr. 115/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 115/2021

Miðvikudaginn 16. júní 2021

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Anna Rut Kristjánsdóttir lögfræðingur.

Með rafrænni kæru móttekinni 1. mars 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 4. febrúar 2021 um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta vegna ársins 2019.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2019 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 207.973 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu og innheimtu kröfunnar með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 4. febrúar 2020.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 1. mars 2020. Með bréfi, dags. 9. mars 2021, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 29. apríl 2021, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. maí 2021. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Greint er frá því í kæru að á árinu X hafi kærandi og eiginmaður hennar tekið út sparnað sinn og skipt honum í evrur. Þetta hafi verið liður í undirbúningi fyrir flutning þeirra til B. Þau hafi upplýst Tryggingastofnun um þessar tekjur í tekjuáætlun þar sem þau hafi vitað að þetta myndi hafa áhrif á greiðslur þeirra frá stofnuninni. Þetta hafi leitt til lágmarksgreiðslna á árinu 2018.

Í [...] hafi þau hjónin flutt til B og fengið lögheimili þar í byrjun árs 2019. Á fyrri hluta árs 2019 hafi þau selt íbúð sína á Íslandi. Eins og komi fram á skattskýrslum hafi þau sett söluverðið á evrureikning. Ætlunin hafi verið að kaupa íbúð á B sem þau hafi gert sama ár. Á árinu 2019 hafi meirihluti aleigu þeirra verið tímabundið á evrureikningi, eða þangað til að þau hafi greitt fyrir íbúðina á B. Það hafi orðið til þess að þeim hafi verið reiknaðar tekjur vegna breytinga á gengi íslensku krónunnar sem hafi leitt til þess að Tryggingastofnun hafi lækkað greiðslur árið 2021 eins og endurgreiðslukrafan sýni.

Kærandi gæti fallist á tekjuskerðingu Tryggingastofnunar ef einhver hefði greitt þeim þessa fjárhæð í peningum en svo hafi ekki verið. Það sé engin leið fyrir þau að nýta þessar svokölluðu tekjur sem hafi orðið þess valdandi að tekjur þeirra frá Tryggingastofnun hafi verið skertar. Um sé að ræða 1.500.000 kr. Af þessari upphæð hafi þau borgað 22% í fjármagnstekjuskatt sem geri rúmlega 330.000 kr. Þar við bætist að Tryggingastofnun skerði tekjur þeirra um rúmlega 400.000 kr. vegna þessarar sömu upphæðar. Þetta sé sami sparnaður og þau hafi leyst út árið 2017 og hafi tilkynnt Tryggingastofnun um eins og greint hafi verið frá hér að framan.

Frá flutningi til B hafi þau hjónin alltaf breytt öllum tekjum í evrur um leið og þau hafi fengið þær vegna þess að það sé sá gjaldmiðill sem þau noti. Þróunin þessi þrjú ár sem þau hafi verið búsett á B hafi verið sú að þau fái færri og færri evrur fyrir þær tekjur sem þau fái frá Íslandi. Það þýði að kaupmáttur þeirra minnki í takt við veikingu íslensku krónunnar gagnvart evru. Þetta gerist samtímis og Tryggingastofnun hafi minnkað greiðslur til þeirra vegna gengissigs krónunnar. Það sé augljóslega eitthvað sem ekki gangi upp.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærður sé endurreikningur tekjutengdra bóta ársins 2019.

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt varðandi hvað skuli teljast til tekna. Til tekna samkvæmt III. kafla laga um almannatryggingar teljist tekjur samkvæmt II. kafla laga um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað ekki teljist til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum.

Í a-lið 2. mgr. 16. gr. sé fjallað um fjármagnstekjur og þar segi: „Ef um hjón er að ræða skiptast tekjur skv. 1. málsl. til helminga milli hjóna við útreikning bótanna. Skiptir ekki máli hvort hjónanna er eigandi þeirra eigna sem mynda tekjurnar eða hvort um séreign eða hjúskapareign er að ræða.“ Í 16. og 23. gr. laga um almannatryggingar sé kveðið á um áhrif tekna á ellilífeyri.

Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 55. gr. laganna. Þar komi fram sú skylda Tryggingastofnunar til að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Á árinu 2019 hafi kærandi verið með ellilífeyri og tengdar greiðslur allt árið. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins hafi leitt til 207.973 kr. ofgreiðslu, að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu. Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast sé sú að við samkeyrslu við tekjuupplýsingar frá kæranda árið 2020 vegna tekjuársins 2019, hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi reynst hærri en tekjuáætlun hafði gert ráð fyrir. Endurreikningur hafi byggst á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega og öðrum gögnum þar sem kærandi sé búsettur erlendis.

Kærandi hafi sent inn tekjuáætlun þann 29. desember 2018. Samkvæmt áætluninni hafi verið gert ráð fyrir að á árinu 2019 væri kærandi með 1.990.008 kr. í lífeyrissjóðstekjur, 509.629 kr. (39.384 sek) í erlendar lífeyrissjóðstekjur, 229.349 kr. (17.724 sek) í erlendan grunnlífeyri og 400.000 kr. í fjármagnstekjur sameiginlegar með maka. Greitt hafi verið út frá þessari áætlun í janúar og febrúar 2019.

Kærandi hafi sent inn nýja tekjuáætlun þann 2. febrúar 2019 sem hafi verið óbreytt að öðru leyti en því að gert hafi verið ráð fyrir að fjármagnstekjur yrðu 50.000 kr. sameiginlegar með maka á árinu. Kærandi hafi fengið greitt samkvæmt þessari nýju tekjuáætlun allt árið 2019.

Við bótauppgjör ársins 2019 hafi komið í ljós að á árinu hafi kærandi verið með 2.441.135 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 1.570.443 kr. í fjármagnstekjur sameiginlegar með maka. Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2019 hafi verið sú að kærandi hafi verið ofgreidd í bótaflokknum ellilífeyri.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2019 hafi verið sú að kærandi hafi fengið 2.025.234 kr. greitt á árinu en hafi átt að fá 1.695.432 kr. greitt. Þessi mismunur hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 207.973 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Í kæru komi fram að kærandi telji að horfa eigi til þess að fjármagnstekjurnar hafi myndast vegna gengisbreytinga.

Samkvæmt 16. grein laga um almannatryggingar beri Tryggingastofnun að líta til tekna við útreikning bóta. Í ákvæðinu sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt varðandi hvað skuli teljast til tekna og séu fjármagnstekjur þar tilgreindar. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem komi fram í skattframtölum. Telji kærandi að skattframtal sé ekki rétt geti hún óskað eftir leiðréttingu hjá skattyfirvöldum. Í kjölfar skattbreytinga megi óska eftir endurreikningi á uppgjöri.

Kærð ákvörðun sé í samræmi við þær lög og reglur sem gildi um uppgjör og endurreikning tekjutengdra bóta. Hún sé einnig í samræmi við fordæmi úrskurðarnefndar velferðarmála og forvera hennar, úrskurðarnefndar almannatrygginga. Með vísun til framanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur til að breyta fyrri ákvörðun sinni.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2019 og innheimtu ofgreiddra bóta.

Kærandi fékk greiddan ellilífeyri frá Tryggingastofnun á árinu 2019. Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 2. mgr. 16. gr. laganna kemur fram að til tekna skuli telja tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Sé litið til þeirra laga kemur meðal annars fram að til tekna skuli telja fjármagnstekjur, sbr. C- lið 7. gr. laga um tekjuskatt. Þá segir í 2. málsl. a-liðar 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar að fjármagnstekjur skuli skiptast til helminga á milli hjóna við útreikning bóta. Samkvæmt 1. mgr. 23. gr. laga um almannatryggingar skal ellilífeyrir lækka um 45% af tekjum lífeyrisþegans, sbr. 16. gr., uns lífeyririnn fellur niður. Þá segir að ellilífeyrisþegi skuli hafa 300.000 kr. almennt frítekjumark við útreikning ellilífeyris og 1.200.000 kr. sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna.

Á grundvelli 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Ef í ljós kemur við endurreikning að bætur hafi verið ofgreiddar, ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 55. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Við úrlausn þessa máls hefur úrskurðarnefnd velferðarmála hliðsjón af þeim lagaákvæðum sem tilgreind hafa verið hér að framan.

Kærandi sendi Tryggingastofnun tekjuáætlun þann 29. desember 2018 þar sem hún gerði ráð fyrir 1.990.008 kr. í lífeyrissjóð, 509.629 kr. í erlendan lífeyri, 229.349 kr. í erlendan grunnlífeyri og 400.000 kr. í vexti sameiginlegar með maka. Tryggingastofnun féllst á tekjuáætlun kæranda og voru bótaréttindi því reiknuð og bætur greiddar út miðað við þær forsendur í janúar og febrúar 2019. Kærandi sendi inn nýja tekjuáætlun 2. febrúar 2019 þar sem hún gerði ráð óbreyttum tekjum að undanskildum vaxtatekjum sem hún áætlaði að yrðu 50.000 kr. sameiginlegar með maka. Tryggingastofnun féllst á tekjuáætlun kæranda og voru bætur greiddar út miðað við þær tekjuforsendur út árið 2019.

Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda vegna tekjuársins 2019 reyndust tekjur kæranda á árinu 2019 vera 2.441.135 kr. í lífeyrissjóðstekjur og sameiginlegar tekjur kæranda og maka reyndust vera 1.570.443 kr. í vexti og verðbætur. Niðurstaða endurreiknings Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins var sú að kærandi fékk ofgreiddan ellilífeyri og orlofs- og desemberuppbætur og að ofgreiðsla ársins hafi verið samtals að fjárhæð 207.973 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kærandi hefur verið krafin um endurgreiðslu þeirrar fjárhæðar.

Samkvæmt framangreindu reyndust fjármagnstekjur kæranda vera hærri á árinu 2019 en gert hafði verið ráð fyrir í tekjuáætlun og leiddi til kærðrar ofgreiðslukröfu. Eins og áður hefur komið fram eru fjármagnstekjur tekjustofn sem hefur áhrif á bótarétt samkvæmt lögum um almannatryggingar, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og C-lið 7. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur. Tryggingastofnun hefur því enga heimild til að líta fram hjá fjármagnstekjum sem koma fram á skattframtali kæranda líkt og kærandi óskar eftir.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2019.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, á árinu 2019, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum